Foss hefur í áraraðir verið áningarstaðir ferðamanna bæði ríðandi, gangandi og akandi.

Foss

Foss

Foss er staðsettur ofarlega á Rangárvöllum og var búið þar til ársins 1978, segja má að Fjallabaksleið syðri byrji/endi við afleggjarann að Fossi. Foss er því kjörinn staður til þess að hefja eða enda ferðalag um Fjallabak. Foss er náttúruparadís með ótal göngu- og reiðleiðir í nágrenninu og kjörið fyrir útivistarfólk og náttúruunnendur að dvelja þar í lengri eða skemmri tíma. Foss er í senn friðsæl náttúruperla en einnig er stutt í alla þjónustu hvort sem er á Hellu eða Hvolsvelli. Á Fossi er gistiaðstaða fyrir allt að 36 manns, eldunaraðstaða og vatnssalerni. Mjög góð aðstaða er fyrir hross, aðgengileg beitarhólf og gott gerði.

Frábær áningarstaður ferðafólks um fjallabak

 

Á Fossi er gistiaðstaða fyrir allt að 18 manns, eldunaraðstaða og vatnssalerni. Mjög góð aðstaða er fyrir hross, aðgengileg beitarhólf og gott gerði.

Verð sumarið 2024:
Skáli: 7.500 per mann en að lágmarki 75.000
Sturtur: 500
Næturgjald á hest í beitarhólfi: 750
Tjaldsvæði á mann: 1.500

Taka þarf meðferðis: WC pappír, tuskur, viskustykki, kveikjara og kerti.

Um okkur

Við sem stöndum að þessari þjónustu höfum um árabil haft mikinn áhuga á þessu svæði og farið all oft um það á bílum og hestum. Haustið 2009 auglýsti Rangárþing ytra skálana til sölu og við hugsuðum okkur ekki tvisvar um, buðum í og fengum.

Við höfum mikinn metnað til að byggja svæðin upp fyrir ferðafólk svo að sem flestir geti notið þeirrar stórkostlegu náttúru sem svæðið hefur upp á að bjóða.

Við áætlum að framkvæma einhvað á hverju ári til þess að bæta aðstöðuna svo gestum okkar líði sem best og njóti dvalarinnar í alla staði.

Hafa Samband

Sími: 896-9980

Email: info@fjallaskalar.is

Leiðarvísir